sunnudagur, janúar 28

HM

Það hlýtur að teljast mikill munaður að geta setið við vinnu og horft á kappleik Íslendinga og Þýsklendinga í beinni á netinu..

Staðan er 22-15 og ég ræð mér vart fyrir spenningi

Ég komst þó að því að vinna og kappleikir fara ekki vel saman, sérstaklega þegar um svo stórann atburð er að ræða...

...ég öskraði á gamlann mann í símann þegar strákunum tókst að klúðra góðu færi...

www.hrebbna.tk
-Áfram Ísland!-

miðvikudagur, janúar 17

Kaldhæðni dagsins

Það er ákaflega mikil kaldhæðni að kaupa sér málningarpensil sem heitir hinu mikla nafni Picasso, og mála svo eins og þriggja ára barn með penslinum

www.hrebbna.tk
-að mála-

mánudagur, janúar 8

Af líkamsrækt

Það hefði verið prýðisgott efni í gamanþáttaröð að horfa á okkur systurnar fara í ræktina í fyrsta skipti í morgun..

..Orðum það bara þannig að undirrituð fer ekki á hlaupabrettið í bráð

www.hrebbna.tk
-í átaki-

fimmtudagur, janúar 4

Barið á glugga...

Ég vaknaði við það í nótt, á fremur ókristilegm tíma, að það var bankað á gluggann minn.

Í fyrstu hélt ég að mig væri að dreyma, og sneri mér á hina hliðina og bjóst til brottfarar í draumalandið...

Aftur var bankað á gluggann...

Ég reis upp, fremur skelfd og teygði höfuðið í áttina að glugganum sem er rétt fyrir ofan rekkjuna en sá engann á ferli, engann sem gæti átt erindi við mig klukkan 04:36 á svefntíma.

Enn var bankað..

Á þessu stigi málsins hefði hjartað mitt spregt alla púlsmæla á Landspítalanum, svo mikil var skelfingin sem greip um mig. Bankið ágerðist í sífellu, en engann var að sjá...

Ég reyndi árangurslaust að kalla á móður mína, stoð og styttu, en kom varla upp hljóði af skelfingu...

Hver var að berja á gluggann minn?

Rétt áður en ég hugðist brjóta rúðuna með annars ágætlega ilmandi ilmvatsglasi...fann ég sökudólginn....

...Gardínan var klemmd út um gluggan, og bankaði og bankaði og bankaði

www.hrebbna.tk
-stóra stelpan ,með litla hjartað-